09mars

HÆTT

ÉG ER HÆTT MEÐ ÞESSA SÍÐU, ER BÚIN AÐ FÆRA MIG AFTUR YFIR Í GAMLA
ÞESSI SÍÐA ER BARA EKKI ALVEG AÐ GERA SIG, ROSALEGA OFT SEM ÉG KEMST EKKI INN Á HANA SVO ÉG GAFST UPP.......

www.blog.central.is/sokrates
09. mars 2007 klukkan 16:48
Edda Unnsteinsdóttir
Engin athugasemd
26september

blogg hvað?

Þetta er nú meiri letin í manni, er sko búin að vera þvílíkt löt síðan á laugardag, ekki nennt að gera handtak!! Hef samt afrekað það að fara í 3 göngutúra og svo þetta vanalega, þvo þvott og hengja út á snúru og brjóta svo saman. En í gær var kominn frekar stór haugur af hreinum þvotti sem beið eftir því að komast á réttan stað svo ég dreif í því. Og þreif svo meiri þvott og braut meira saman. Ótrúlegt hvað það er alltaf mikill skítugur þvottur hérna hjá mér. En það er svona að vera með lítið barn sem er duglegt að gubba sig út nú eða bara slefa í öll fötin sín. En á laugardagskvöldinu gubbaði Dagný Þóra sig alla út og það var bara allt í bólinu hennar útælt, sængin og lakið og hún sjálf auðvitað og allur fatnaðurinn sem hún var í. Við Addi vorum á endanum sjálf öll út í gubbi eftir þetta. Á sunnudaginn fórum við í mat til Beggu, nammi namm það var lambalæri. Svo var Begga að gefa Dagnýju grautinn og svo bara allt í einu þegar hún var alveg að vera búin að borða gubbaði hún öllu sem hún hafði borðað og það varð að taka hana úr næstum öllum fötunum. Ætli hún hafi ekki náð sér í smá ælupest. Samt skrítið því hún ældi aldrei á daginn, bara á kvöldin, fyrsta skiptið var um 11 leytið þegar hún var að sofa, hún bara vaknaði eftir klukkutíma svefn og gubbaði. Og seinna skiptið um 8 leytið. Annars hefur hún ekkert verið slöpp nema á laugardaginn var hún svolítið slöpp, vildi ekki leggja sig og ekki drekka eða borða.

En já, annars er allt gott í fréttum, er hugsanlega búin að fá rúm fyrir Dagnýju. Begga var að hringja og ein sem er að vinna með henni vantar að losna við barnarúm og það er gefins svo það er mjög gott. Kannski fæ ég bara rúmið í dag!
Er ekki enn búin að fá vinnu en ég fór niður á bæjarskrifstofu í gær og fékk umsókn um atvinnuleysisbætur og er komin á atvinnulausraskrá hjá þeim. En þessi umsókn maður, vá þvílíkt vesen. Endalausir pappírar sem þarf að fylla út og svo þurfti ég að hringja hingað og þangað og fá vottorð og bla bla bla!! Tók endalausan tíma í gær að græja þetta. Og núna þarf ég bara að bíða eftir þessum vottorðum og þá get ég skilað inn umsókninni. Vonandi fæ ég svo að sjá einhverja peninga fljótlega!!! Er að deyja úr peningaleysi og það þoli ég ekki!!

Við ætlum að reyna að fara suður eitthvað um helgina. Verð að fara að kíkja á hana litlu frænku. Við ætluðum líka að kaupa rúm handa Dagnýju en þurfum þess ekki núna.

En það er kannski best að halda áfram að gefa unganum mínum grautinn sinn!

26. september 2006 klukkan 17:07
Edda Unnsteinsdóttir
6 athugasemdir
22september

Geggjað dugleg!!!

Er búin að vera þvílíkt dugleg í dag. Óli var ekki að beita í dag svo við vorum að taka til í húsinu. Óli ryksugaði og ég skúraði svo allt saman. Er líka búin að þvo af rúminu okkar Adda, samtals búin að setja 3var í þvottavélina í dag. Svo er ég búin að gera þetta vanalega, brjóta saman þvott og vaska upp og auðvitað sinna Dagnýju.

Helgin hjá okkur er algjörlega óráðin. Veit ekkert hvað við eigum að gera. Langaði svolítið að fara suður og kíkja á nýjustu frænkuna mína en var að spá í að fara ekki fyrr en eftir mánaðarmót þegar við eigum einhvern pening svo ég geti keypt eitthvað fallegt handa henni.
Hef aðeins verið að spá í að fara skreppa vestur í einn dag og sækja dót, veit samt ekki hvort það verður eitthvað úr því.

Geggjað krúttlegt áðan sem Dagný gerði. En hún situr hérna við hliðina á mér núna og er að borða brauð með kæfu. Svo var hún eitthvað að vesenast með smekkinn og svo blés hún alveg óvart og vissi ekki alveg hvað hún hafði gert og var svolítið gáttuð en svo hefur ekkert komið meir.
Hef verið að reyna að kenna henni að segja mamma en það kemur ekkert frá henni nema ahh aftur og aftur. Svo í gær var ég alveg á fullu mamma mamma mamma og á endanum var hún farin að segja ahh ahh. En hún blaðrar ekki mikið daman, segir s.s. bara ahh allan daginn og svo er hún voða mikið á háa C-inu, alltaf skrækjandi og öskrandi, en það er samt svo yndislegt, stundum verður maður pínu þreyttur en þetta er bara hennar leið til að tjá sig, sum babbla, sum blaðra og sum öskra, og ég á eitt stykki öskurapa!!! ;)
Í gær fékk Dagný í fyrsta sinn kjúkling og henni fannst hann nokkuð góður. Ég var bara með steikta kjúklingabita og skar litla bita handa henni og hún borðaði nokkuð marga bita. Ég má fara að gefa henni eiginlega bara allt, hún Brynja sem við fórum til í vigtunina í gærmorgun sagði meira að segja að hún mætti fá fisk en ég ætla að bíða með það.
Ætla á eftir kannski í Bónus og kaupa haframjöl því ég ætla að fara að gefa dömunni hafragraut á morgnana um leið og hún vaknar. Kenna henni á þetta morgunverðadæmi! Ætli ég verði þá ekki líka að fara að borða morgunmat, en ég sleppi því oftast.

En það var ekki fleira í dag.....

Ótrúlegt hvað henni finnst gaman að rífa í köttinn!

Æfa sig í að standa upp, en það tókst samt ekki! En kemur seinna hjá henni

22. september 2006 klukkan 18:57
Edda Unnsteinsdóttir
1 athugasemd
21september

úff...

Prinsessan mín er 7 mánaða í dag! Finnst svo stutt síðan hún fæddist, man alveg þegar ég sá hana fyrst og vá hvað ég grét þá, yndislegri manneskju hafði ég ekki augum litið áður. Og hún öskraði svo mikið að það heyrðist yfir í hinn enda gangsins þar sem mamma beið eftir að sjá dömuna.

En við byrjuðum daginn á því að fara upp á heilsugæsluna því Dagný Þóra fór í vigtun. Það er engin 7 mánaða skoðun en mig langaði bara að fara með hana og láta vigta hana og mæla. Ekki hefur hún verið að bæta mikið á sig, hún er orðin 6,990 gr og 65 cm, s.s. búin að þyngjast um rúmlega 200 gr og lengjast um hálfan sentimeter!! En hún var jú veik og slöpp næstum alla síðustu viku og vildi ekki borða mikið og svo er hún alltaf á iði! Brennur örugglega alveg rosalega hratt eins og pabbi sinn.
Fórum svo í Bónus og keyptum hitt og þetta. Fann loksins það sem ég var að leita að, uppþvottabursta til að þrífa pela. Það voru fastar slettur í pelunum sem ég náði bara alls ekki úr þrátt fyrir mikil þrif en burstinn náði þessu úr á nó tæm!

Þegar við komum svo heim fór Dagný bara útí vagn og ég fékk mér hádegismat. Svo er ég bara búin að vera löt, nenni gjörsamlega ekki neinu!!!!

Nenni ekki einu sinni að blogga meira, veit ekkert hvað ég get sagt frá fleiru.....
21. september 2006 klukkan 18:15
Edda Unnsteinsdóttir
2 athugasemdir
19september

Þriðjudagur

Strax kominn 19. september. Finnst þessi mánuðu vera nýbyrjaður. Eftir 2 daga verður Dagný Þóra 7 mánaða!! Pælið í því. Líst ekki á þetta hvað tíminn er fljótur að líða. Áður en ég veit af verða jólin búin og ég verð að undirbúa eins árs afmæli prinsessunnar minnar!

En það er ekki mikið í fréttum. Helgin hjá mér var frekar misheppnuð, hefði betur átt að sleppa því að fara vestur eins og ég ætlaði að gera. En ég nenni ekki að fara nánar útí það, get bara sagt að ég er komin með ógeð af fyllibyttum og áfengi! Ég var sko ekkert að drekka en sumir hefðu betur látið það ógert að fá sér í glas. Við Dagný Þóra fórum á laugardagskvöldinu á Leiðólfsstaði og hittum Adda þar. Gistum eina nótt hjá Steina Kidda. Ég fór ekki í neina rétt og ekki Dagný Þóra heldur. Skarðssrétt var svo seint og við fórum í staðinn á Leiðólfsstaði og svo var ógeðslega leiðinlegt veður á sunnudaginn og daman mín var rosalega pirruð svo við fórum ekki heldur í Gillastaðarétt. En það eru jú réttir á hverju ári svo við erum ekki að missa af neinu.

En Dagný Þóra er miklu skárri núna, um helgina vildi hún ekki sofa, ekki borða og var voða lítil og ég átti helst alltaf að halda á henni. En á sunnudagskvöldinu þegar við komum aftur í Hólminn var hún strax orðin skárri og hefur verið fín síðan þá, nema er með smá vesen einu sinni á nóttunni. Það fór allt í rugl hjá okkur þegar hún var veik og vildi hún þá ekki drekka á kvöldin en vaknaði svo á nóttunni svöng og fékk pela. Núna þarf ég bara að venja hana af þessu, koma meiri mat ofaní hana á kvöldin og setja hana kannski aðeins seinna í rúmið. Endlaust púsluspil alltaf hjá manni.

En já annars hef ég ekkert verið að gera merkilegt. Við Dagný fórum í Bónus áðan og versluðum slatta. Vantaði svo mikið eins og þvottaefni, bleyjur, WC pappír og fleira. Keypti líka í kvöldmatinn, ætla að hafa lasagne, nammi namm :) Ég varð líka að splæsa á mig slatta af dömubindum því nú fer það hel**** að byrja aftur, búin að vera í næstum 1 og hálft ár ekki á túr en núna er Dagný Þóra alveg hætt á brjósti. Þannig að ekki láta ykkur bregða ef ég verð í vondu skapi næstu daga......

En jæja, núðlurnar mínar eru tilbúnar svo ég ætla að skófla þeim í mig áður en þær verða kaldar!!!

19. september 2006 klukkan 17:26
Edda Unnsteinsdóttir
11 athugasemdir
16september

jibbý :)

Ég var að eignast litla frænku, eða hún var ekkert lítil. Unnur systir átti sem sagt núna í kvöld og var stúlkan 16 merkur og 54 cm. Er voða ánægð með það, greyið pabbi, ekkert nema afastelpur núna hjá honum þetta árið :)

En ég er sem sagt komin í sveitina, kom bara í dag og það er fínt að vera hér. Húsið er reyndar fullt, mamma og pabbi með alla krakkana og svo er Dagný Rún hérna líka og Ebba og co og ég og Dagný Þóra. Addi er upp í leitarkofa núna, smalar á morgun.

Ætlaði bara að hafa þetta stutt núna, láta vita að ég væri búin að eignast frænku.

Innilega til hamingju Unnur og Baddi :)
16. september 2006 klukkan 02:34
Edda Unnsteinsdóttir
2 athugasemdir
14september

Púúúhhh....

Get ekki sagt að ég sé ánægð með úrslitin í Rock Star: Supernova, Toby hefði átt að vinna þetta, ég þoli ekki Lukas, mér finnst hann ljótur, ógeðslegur og bara hann kann ekki að syngja!!! Ef Toby hefði unnið þá myndi ég nenna að hlusta á þessa hljómsveit en ekki núna. Er mjög sátt við hann Magna okkar, hann er orðinn Magni okkar eins og landsliðið :)
En ég fékk sem sagt fríkvöld í gærkvöldi, fór til Beggu um hálf 10 og horfði á allt saman. Addi var heima með Dagnýju. Hann var kannski svolítið svekktur yfir að fá ekki að horfa á úrslitin en ég er svo frek og heimtaði að fá að horfa á þetta, en hann er sko búinn að detta í það og skemmta sér síðustu 2 helgar, ég hef ekkert gert síðan í kvennareiðinni og það er mánuður síðan. Mér fannst ég alveg eiga skilið að fá að horfa á þetta og fá smá frí. Ekki það að Dagný sé eitthvað erfið, alls ekki, stundum vill  maður bara fá að gera eitthvað annað þó svo að það sé ekki nema að skreppa í annað hús og horfa á sjónvarpið.
En já eins og ég sagði þá er ég stolt af honum Magna, fannst hann standa sig ekkert smá vel í keppninni og er fegin því að hann sé ekki að fara að fronta hjá þessum útbrenndu rokkurum sem greinilega kunna ekki að velja sér söngvara við hæfi. Var að lesa aðdáenda skilaboð á rockstar.msn.com og það er ekkert smá hvað það eru margir hrifnir af Magna. En ég er samt viss um að þessi símakosning var ekkert að gera sitt, úrslitin pottþétt fyrirfram ákveðin og símakosningin bara leið til að næla sér í slatta pening! Því að mér fannst á þessum aðdáendum að voða fáir væru að fýla Lukas, flestir voru að digga Magna og kusu hann í fleiri fleiri klukkutíma en samt var hann neðstur af þessum 4. Æi ég nenni ekki að pæla í því lengur, þessi þáttur er búinn!

Það styttist í helgi og ég er ekki enn búin að ákveða hvað ég á að gera. Spurning hvort ég verði ekki bara eftir hérna í Hólminum. Nenni varla að fara heim í fylleríið og vitleysuna þar sem er alltaf um réttirnar og nenni svo ekki að hanga á Leiðólfsstöðum alla helgina að gera ekki neitt. Ekkert meira sem ég gæti gert hérna en ég veit samt ekki. Verð að ákveða það fyrir hádegi á morgun því þá leggur Addi af stað inn eftir því hann er jú að fara ríðandi upp í leitarkofa ásamt öllum hinum.

en jæja, þarf að brjóta saman þvott :)
14. september 2006 klukkan 18:35
Edda Unnsteinsdóttir
Engin athugasemd
12september

Og það tókst.....

Loksins, mér tókst að finna þetta MSN dæmi og er búin að installa þessu. Þannig að núna get ég farið að spjalla við einhvern aftur! Þ.e.a.s. ef það eru einhverjir inni á MSN þegar ég er þar.

Dagný Þóra er búin að vera lasin síðan í gærkvöldi. Hún byrjaði bara á því að fá allt í einu háan hita en er ekki með neitt kvef. Hún var voða lítil í sér. Svo ég gaf henni stíl rétt fyrir svefninn í gærkvöldi og hún svaf í 2 tíma en vaknaði svo aftur um miðnætti og þá fékk hún smá að drekka og svo fékk hún að sofa uppí í nótt og kúrðum við saman til að verða 9 í morgun. Addi fór að vinna kl. 8. Dagný var enn með hita í morgun og fékk aftur stíl svo svaf hún í 2 tíma inn í rúmi í hádeginu og þegar hún vaknaði var hún ekki lengur með hita en samt voða lítil og aum. Ég held að hún sé að fá tennur þar sem hún fékk bara allt í einu hita en ekki með kvef. Sjáum til hvort að ein tannsla skjóti sér ekki leið upp næstu daga.

Ég hef ekki verið að gera mikið í dag nema sinna dóttur minni og svo hanga í tölvunni inn á milli. Er svo mikill tölvusjúklingur. Var að horfa á Rock Star raunveruleikaþættina áðan á msn.com. Gleymdi mér yfir þeim í smá tíma. Ætli ég fari ekki á morgun heim til Beggu að horfa á úrslitin en það er ekki kominn Skjár einn hingað í Lágholtið, en ég pantaði hann áðan svo það ætti að koma á næstu vikum!

En já, ætla að halda áfram að surfa á netinu og finna eitthvað asnalegt að lesa.....
12. september 2006 klukkan 21:15
Edda Unnsteinsdóttir
4 athugasemdir
11september

Need some help!!

Þá erum við mættar í Hólminn og komnar bara strax í netsamband. En ég snillingurinn fiktaði í tölvunni í gærkvöldi þangað til það kom fram það sem ég var að leita að og ég gat tengst roudernum sem var hérna fyrir. Er búin að hanga í tölvunni síðan! Nei kannski ekki alveg en eins og flestir vita sem þekkja mig þá er ég tölvusjúklingur, eða það segir Addi alla vega.
En ég var að msn vesenast í gær en þannig er mál með vexti að ég er ekki með msn í tölvunni því það datt úr þegar tölvan fór í viðgerð í sumar. Ég ætlaði svo bara að gera eins og ég hafði gert áður, farið inn á msn.com og downloade þessu en nei nei þá er búið að breyta öllu og heitir allt eitthvað Microsoft eða Windows Live eitthvað Beta. Var ekkert að fatta þetta og þetta var ekkert það sem ég var að leita að. Er ekki einhver hérna sem kann á þetta og getur hjálpað mér??

En alla vega er ég ekki búin að gera mikið síðan ég skrifaði síðast. Við fórum í mat til Beggu í gærkvöldi og svo bara heim að sinna barninu og svo skruppum við Begga í næsta hús að skoða eina vikugamla prinsessu sem er svo lítil og sæt. Vá mér fannst Dagný bara hafað verið risi þegar hún fæddist miðað við hana Hildar dóttur. En hún er sko ekkert smá fíngerð og svaka sæt, þó svo ég hafi bara séð hana sofandi. Ég verð bara að kíkja á hana aftur seinna.
Við fengum ferðarúm hjá Beggu lánað fyrir Dagnýju en það tókst ekki að setja það saman svo Dagný svaf bara í burðarrúminu í nótt og svaf hún alveg í 11 tíma. Vá enginn smá lúxus. Ég reyndar svaf ekkert rosalega vel. Í gærkvöldi fór kötturinn út og svo kom hann ekkert inn og ég fór út að kalla á hann en heyrði ekkert í bjöllunni hans, ég var smá stressuð því manni er jú ekkert sama um dýrin sín. Svo var ég alltaf að vakna í nótt og vonast til þess að hann væri kominn inn svo um 5 leytið vaknaði ég við bjölluna hans og þá fór ég fram og hann var þá kominn inn og ég voða ánægð með það. Svo gat ég ekkert sofnað strax. Svo kom kisi inn til okkar í morgun þegar við vorum nývöknuð og hoppaði beint upp í rúm til okkar. Núna er hann svo búinn að finna sér stað til að sofa á, en það er í rúminu hennar Brynju! Vona að þér sé sama Brynja mín :)
Svo í morgun er ég bara búin að vera að raða fötunum hennar Dagnýjar inn í skáp og jeddúddamía hvað barnið á mikið af fötum, held að það sé bara ekkert pláss eftir fyrir fötin mín og Adda!! Svo er fullur kassi eftir af fötum sem hún fer ekki að nota alveg strax!!

En já, ætla að fara að gera eitthvað af viti, endilega þið msn snillingar, látið ljós ykkar skína ;)
11. september 2006 klukkan 17:20
Edda Unnsteinsdóttir
3 athugasemdir
10september

Komið að því!

Í dag erum við mæðgurnar að fara að flytja í Hólminn, eða ég held alla vega að ég geti sagt að við séum að fara að flytja. Við erum ekki búin að kaupa hús eða íbúð, ætlum að vera í Lágholtinu hjá Óla pabba hans Adda til að byrja með. Addi byrjar að vinna hjá Pálma á þriðjudaginn. Ég er ekki enn komin með vinnu :( Get leitað betur þegar ég er komin út í Hólm. Ef að svo enginn vill ráða mig í vinnu verð ég bara að sækja um atvinnuleysisbætur!!!

Ebba og co voru að fara suður áðan. Mamma og stelpurnar eru hérna, mamma var að smala fyrir Hermann í gær og eftir smalamennskuna komu allir saman í fjárhúsunum hjá Hermanni og það var svaka stuð. Dagný Þóra var alveg að fýla þetta rolludæmi, fylgdist hún vel með öllu og svo náði amma í lamb og hún var að klappa því og rífa í það og svo lagði hú kinnina upp við það og rak út úr sér tunguna og sleikti lambið!!

Þetta var sko ekkert smá fyndið. Henni fannst nú bragðið ekkert sérstakt!
Held sko að hún eigi eftir að vera algjör sveitastelpa, enda ekki langt að sækja það.

Veðrið hjá okkur er hörmung, rigning og rok eins og er búið að vera lengi lengi. Alveg ömurlegt segi ég nú bara.

Dagný Þóra er sofandi núna og þegar hún vaknar förum við að leggja af stað, eða þegar ég verð búin að pakka alveg niður. Er alla vega búin að pakka niður öllum fötunum hennar og svo eitthvað af fötum á mig og svo eitthvað meira drasl eins og föndurdótið mitt og leikföngin hennar Dagnýjar. Ég tek svo köttinn með en kanínan verður að bíða. Ætla bara að fylla nokkra dalla af mat fyrir hana, það er nefnilega ekki pláss í bílnum hjá mér fyrir hana. Það verður einhver hérna um helgina svo hún fær meiri mat þá. Ég er nefnilega ekki alveg búin að ákveða hvað ég geri á næstu helgi. Nú er nefnilega búið að breyta tímanum á Skarðsrétt, hún verður núna á sunnudegi en var alltaf á laugardegi. Held að við förum bara í Gillastaðarrétt en Addi fer að smala fyrir Bjarna á næstu helgi og við vorum að spá í að vera bara þar yfir helgina við Dagný Þóra.

En jæja, það er kannski best að halda áfram að pakka og fara að henda einhverju í bílinn, er með svo mikið drasl því ég tek svo það allra helsta sem þarf að nota og það fylgir jú mikið dót svo litlum börnum og svo tek ég allt hestadótið með nema hnakkinn, Addi tók hann.
Veit ekki hvernig verður með netsamband þarna hjá mér í Hólminum, en sennilega flyt ég bara símanúmerið okkar þangað og set upp ADSL græjurnar mínar sem eru búnar að vera ofan í tösku síðan í Apríl!!!

en þangað til næst.....


Smá mynd af okkur mæðgunum! :)
10. september 2006 klukkan 17:53
Edda Unnsteinsdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Atburðarteljari

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur